Hrafnhildur Guðjónsdóttir er stofnandi og eigandi stofunnar. Hrafnhildur hefur öðlast fjölbreytta reynslu á ýmsum sviðum lögfræðinnar bæði í námi og eftir útskrift úr laganámi árið 2013.
Hún hóf feril sinn innan stjórnsýslunnar, einkum á sviði eignaréttar og greiðsluaðlögunar /gjaldþrotaskiptaréttar auk þess að hafa starfað hjá dómstólum um nokkra hríð. Síðustu ár hefur hún verið í sjálfstæðum rekstri, bæði í fyrirtækjarekstri tengdum eignarhaldi og útleigu fasteigna og umsjón með rekstri fjöleignarhúsa og sem sjálfstætt starfandi lögmaður.
Hjá HG lögmannsstofu er lögð áhersla á að veita umbjóðendum persónulega og vandaða þjónustu og yfirvegaða og skýra leiðsögn í málum sem oft geta verið viðkvæm og flókin.